14.2.2010 | 21:09
Áhugaleikhúsið sýnir Örverk um áráttur, kenndir og kenjar
Örverk um áráttur, kenndir og kenjar er safn 12 örverka sem hvert um sig tekur á áráttum, kenndum og kenjum sem hafa áhrif á mannlega tivist í Reykjavík 2010 ss. reiði, endurreisn, ást, myrkur, osfr. Hvert verk tekur um 5 - 10 í flutningi og verða verkin frumsýnd kl.12:30 síðasta fimmtudag í hverjum mánuði allt árið 2010 og sýnd í beinni útsendingu á veraldarvefnum .
Viðfang verkanna ræðst af því sem hrærist í samtímanum og hefur áhrif á líf okkar.
Fyrsta verkið í röðinni JANÚAR, var frumsýnt þann 28.janúar en verk númer tvö FEBRÚAR, er nú í vinnslu og verður það frumsýnt 25.febrúar kl.12:30.
Hvert verk byrjar þar sem síðasta verk endaði og þannig er hvert verk áframhald af því síðast þó viðfangið sé ávallt nýtt. Fyrsta verkið byrjar í tómu rými en með hverju verki kemur inn leikmunur sem fer ekki út aftur og þróast því leikmynd/innsetning með hverju verkinu og endar í desember 2010 á innsetningu sem hefur verið í sköpun í heilt ár.
Í byrjun árs 2011 verða öll verkin flutt í einu og er þá hið eiginleg verk fullskapað og tekur það um 90 - 120 mínútur í flutningi.
Verkin verða flutt í ÚTGERÐINNI, nýju gjörningarými Hugmyndahúss háskólanna á Granda og verða einnig send í beinni útsendingu í nýju netleikhúsi www.herbergi408.is, þar sem verkin verða vistuð og öllum aðgengileg út árið.
Ókeypis aðgangur er að sýningunum.
Leikstjóri og höfundur:Steinunn Knútsdóttir
Myndupptaka og útsendingar annast nemar á listnámsbraut Borgarholtsskóla undir handleiðslu Hákonar Más Oddssonar.
Leikarar:Aðalbjörg Árnadóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Hannes Óli Ágústsson, Harpa Arnardóttir, Jórunn Sigurðardóttir, Kristjana Skúladóttir, Lára Sveinsdóttir, Orri Huginn Ágústsson, Ólafur Steinn Ingunnarson, Ólöf Ingólfsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson o.fl.
Janúar from Netleikhús on Vimeo.
Flokkur: Menning og listir | Breytt 27.2.2010 kl. 11:32 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.